|
Skrifað hefur Sigríður Guðnadóttir
|
|
Friday, 06 November 2009 |
|
Þetta er fimmti veturinn sem skólamötuneyti er starfrækt. Maturinn er keyptur hjá Sláturfélagi Suðurlands á Hvolsvelli. Panta verður matinn hjá skólaritara eða á sunnan3.is, hægt er að panta þá daga sem best henta barninu. Ef breyta þarf pöntun þarf að gera það fyrir 15. hvers mánaðar og tekur breytingin þá gildi þann 1. næsta mánaðar á eftir. Máltíðin kostar 265 kr. pr/dag, sendur verður greiðsluseðill til greiðenda. Hægt er að fá sérmat fyrir börn með fæðuofnæmi. Mjólkina er einnig hægt að panta hjá skólaritara eða á sunnan3.is. Mjólkin kostar 20 kr. pr/dag er hún innheimt með matnum.
|
|
Síðast uppfært ( Tuesday, 06 October 2009 )
|
|
|
Skrifað hefur Sigríður Guðnadóttir
|
|
Wednesday, 07 October 2009 |
|
Sérkennsla er fyrir nemendur sem þurfa stuðning eða sérstök úrræði í lengri eða skemmri tíma.
Sérkennslan er til að mæta þörfum einstaklinga þannig að markmið grunnskólalaganna nái fram að ganga fyrir alla nemendur.
Umsjónarkennarar skila mati á sérkennsluþörf nemenda sinna til umsjónarmanns sérkennslu/skólastjóra fyrir lok skólaárs. Ef kennarar/forráðamenn hafa áhyggjur af gengi barns er sjálfsagt að athuga hjá umsjónarmanni sérkennslu hvaða úrræði eru í boði.
Í Grunnskólanum í Þorlákshöfn er þessari kennslu ýmist sinnt í litlum hópi í sérkennslustofu, sem einstaklingskennslu í sérkennslustofu eða stuðningskennari kemur inn í kennslustund til aðstoðar kennara. Umsjónarkennarar og sérkennari semja einstaklingsnámskrá fyrir sérkennslunemendur í upphafi skólaárs og endurskoða hana í byrjun vorannar.
Markmið sérkennslunnar er ávallt að koma til móts við mismunandi þroska og þarfir nemenda með kennslu við hæfi hvers og eins.
| Bekkur |
Próf |
Tímasetning |
| 1 |
Tove Krogh teiknipróf |
okt. og apríl |
| |
Lesskimunarpróf |
nóv./feb./apríl |
| |
Hreyfiþroskapróf |
eftir áramót jan./feb. |
| |
|
|
| 2 |
Lesskimunarpróf |
nóv. og apríl |
| |
Stærðfræðikönnun |
janúar |
| |
|
|
| 3 |
Stærðfræðikönnun |
október |
| |
Lestrargreining |
september |
| |
Lesskilningspróf LH60 |
apríl |
| |
|
|
| 4 |
Stafsetningarkönnun |
september |
| |
|
|
| 5 |
Stærðfræðikönnun |
september |
| |
Lestrar-/stafsetningarkönnun |
október |
| |
|
|
| 6 |
Lesskilningspróf LH40 |
september |
| |
Stafsetningarkönnun |
september |
| |
Stærðfræðikönnun |
október |
| |
|
|
| 7 |
Hljóðlestrarpróf |
um miðjan september |
| |
Stafsetningarkönnun |
um miðjan september |
| |
|
|
| 8 |
Hljóðlestrarpróf |
í lok september |
| |
Stærðfræðikönnun |
í byrjun október |
Þessi próf eru greiningartæki. Farið verður með niðurstöður úr öllum prófum sem trúnaðarmál. Forráðamönnum eru kynntar niðurstöður.
|
|
Síðast uppfært ( Wednesday, 07 October 2009 )
|
|
|
Skrifað hefur Sigríður Guðnadóttir
|
|
Wednesday, 07 October 2009 |
|
Hlutverk nemendaverndarráðs er að samræma skipulag og framkvæmd þjónustu við nemendur varðandi heilsugæslu, námsráðgjöf og sérfræðiþjónustu og vera skólastjóra til aðstoðar við gerð og framkvæmd áætlana um sérstaka aðstoð við nemendur.
Í nemendaverndarráði eiga sæti skólastjóri, umsjónarmaður sérkennslu, hjúkrunarfræðingur skólans og félagsmálastjóri.
Kennarar, foreldrar og nemendur geta leitað til nemendaverndarráðs með sín mál. Umsjónarkennari þess nemanda sem fjallað er um mætir á fundi nemendaverndarráðs. Auk þess sitja fundi einstaka kennarar eða aðrir sem til eru kallaðir eða hafa óskað að leggja mál fyrir ráðið. Tilvísanir sem berast eru ræddar á fundum ráðsins og teknar ákvarðanir um hvernig taka skal á málum viðkomandi einstaklinga. Allar upplýsingar sem fram koma eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Fundað verður í nemendaverndarráði einu sinni í mánuði, en oftar ef þurfa þykir.
|
|
Síðast uppfært ( Wednesday, 07 October 2009 )
|
|
|
Skrifað hefur Sigríður Guðnadóttir
|
|
Wednesday, 07 October 2009 |
|
Á skólasafninu eru bæði skáldsögur og fræðirit. Auk þess eru þar ýmis tímarit einkum ætluð börnum og unglingum, margs konar spil og hljóðbækur.
Bókasafnið er opið á starfstíma skólans. Allir nemendur fá bókasafnskort sem þeir geta notað jafnt á skólasafni og bæjarsafni. Foreldrar eru beðnir um að aðstoða börnin við að varðveita lánsbækur og skila þeim á réttum tíma. Ef bók tapast ber foreldrum að greiða bókina eða kaupa nýja.
|
|
Síðast uppfært ( Wednesday, 07 October 2009 )
|
|
|
Skrifað hefur Sigríður Guðnadóttir
|
|
Tuesday, 06 October 2009 |
|
Við skólann starfar sálfræðingur og er forráðamönnum sem óska eftir að ná sambandi við hann vegna barna sinna bent á að hafa samband við umsjónarkennara eða skólastjórnendur.
Óskir um þjónustu sálfræðings koma fyrst og fremst frá kennurum, sérkennurum eða foreldrum. Nemendur geta einnig sjálfir óskað eftir viðtali við sálfræðing. Sálfræðingur er Wilhelm Norðfjörð er hann við tvo daga í mánuði og oftar ef þörf er
|
|
Síðast uppfært ( Tuesday, 06 October 2009 )
|
|
|
|