|
Ţorsteinn Helgi í 2. sćti |
|
Skrifađ hefur Sigríđur Guđnadóttir
|
|
Friday, 10 September 2010 |
|
Þorsteinn Helgi Sigurðarson, í 8. bekk, hefur staðið sig gríðarlega vel í sumar í Íslandsmótaröðinni í mótorkrossi . Samanlögð stig eftir keppnir sumarsins skiluðu honum í annað sæti til Íslandsmeistara á eftir Guðbjarti Magnússyni en í þriðja sæti var Einar Sigurðsson. Strákarnir þrír keppa allir fyrir Team Honda Racing og innan þess liðs mynda þeir sitt eigið lið í 85cc flokki en þeir kalla sig Team Freaking Awesome.
Þess má geta að árangur Þorsteins Helga, eftir sumarið, er sennilega sá besti sem 13 ára strákur hefur náð í þessum flokki hérlendis.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifađ hefur Sigríđur Guđnadóttir
|
|
Friday, 03 September 2010 |
|
Haustdagurinn fór að þessu sinni fram í Íþróttamiðstöðinni og kepptu nemendur í boðhlaupi og langhlaupi. Árgangar kepptu sín á milli og kennarar og nemendur kepptu í kúluvarpi.
Íþróttakennararnir skipulögðu keppnina og íþróttaráð fylgdist vel með að allir færu eftir settum reglum.
Nemendur hvöttu bekkjarfélaga sína og voru einstaklega prúðir áhorfendur. Allir skemmtu sér konunglega.
Hér eru myndir frá gleðinni.
|
|
|
Skrifađ hefur Sigríđur Guđnadóttir
|
|
Thursday, 02 September 2010 |
|
10. bekkur heldur hið svokallaða Pollaball fyrir unglingastigið (8.-10. bekk) í kvöld kl. 20 í sal Grunnskólans. Aðgangseyrir er kr. 250.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 4 af 212 |