spacer.png, 0 kB
Forsíða
Egilsbraut 35
815 Þorlákshöfn
Sími: 480 3850
Fax: 483 3334 
Netfang: Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
« < September 2010 > »
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Innskráning






Týnt lykilorð?
Ekki með aðgang? Búðu til einn

Tengd núna

Við höfum 6 gesti tengda
spacer.png, 0 kB
spacer.png, 0 kB
skolinn_1.jpg
Skólastefna Sveitarfélagsins Ölfuss
Skrifað hefur Sigríður Guðnadóttir   
Wednesday, 26 May 2010

Til íbúa Ölfuss

Drög liggja nú fyrir að skólastefnu Sveitarfélagsins Ölfuss. Starfshópur sem skipaður var af bæjarstjórn í október á síðasta ári hefur unnið þau í góðu samráði við fjölmarga hagsmunaaðila skólamála. Drögin eru hér með birt á heimasíðu sveitarfélagsins, Grunnskólans í Þorlákshöfn og Leikskólans Bergheima og er unnt að senda inn athugasemdir og ábendingar til 2. júní nk. á netföngin Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það  og Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það .

Lára Ásbergsdóttir, formaður fræðslunefndar

Drögin að skólastefnu Sveitarfélagsins Ölfuss.

Síðast uppfært ( Tuesday, 22 June 2010 )
 
Nýsköpun í 8. bekk
Skrifað hefur Sigríður Guðnadóttir   
Wednesday, 19 May 2010

heimabyggd_smallNemendur, 8. bekkjar Ó, hafa tekið þátt í verkefni, í vetur, á vegum Landsbyggðarvina í Reykjavík og nágrenni sem nefnist - Heimabyggðin mín - Nýsköpun - Heilbrigði og Forvarnir.

Markmið verkefnisins er að virkja unga fólkið til umhugsunar um heimabyggð sína, hvernig það vill sjá hana í framtíðinni og koma með hugmyndir að úrbótum.

Í fyrri hluta verkefnisins skrifuðu nemendur ritgerð og lenti ritgerð Davíðs Arnars í 2. sæti en hún fjallaði um lagningu hjólastíga í sveitarfélaginu. Í seinni hluta verkefnisins unnu nemendur í hópvinnu og var afrakstur hópanna kynntur fyrir dómnefnd frá Landsbyggðarvinum í morgun.

Eitt verkefni, af fjórum, var valið til að taka þátt í lokakeppninni sem verður haldin í Norræna húsinu 31. maí 2010. Verkefnið sem vann var um lagningu hjólastíga frá Þorlákshöfn og út í Selvog sem Aðalbjörg Ýr, Dagbjartur, Davíð Arnar og Ingibjörg gerðu.

Síðast uppfært ( Thursday, 20 May 2010 )
Lesa meira...
 
Emil Karel Norðurlandameistari
Skrifað hefur Sigríður Guðnadóttir   
Monday, 17 May 2010

nm2010_u16kk_meistararEmil Karel Einarsson, í 10. bekk, er fyrirliði U16 ára landsliðs drengja í körfuknattleik. Í gær, 16. maí, urðu þeir Norðurlandameistarar 2010 á Norðurlandamótinu sem haldið var í Svíþjóð. Einar Árni Jóhannsson, þjálfari liðsins, sagði í viðtalið við fjölmiðla að hann væri afar stoltur af drengjunum, þeir hefðu staðið sig afburðar vel og liðsheildin væri frábær.

Við eru afar stolt af Emil Karel og óskum honum innilega til hamingju með sigurinn.

Síðast uppfært ( Thursday, 20 May 2010 )
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 13 - 16 af 212
spacer.png, 0 kB
spacer.png, 0 kB
spacer.png, 0 kB
spacer.png, 0 kB
  spacer.png, 0 kB