|
Skrifað hefur Sigríður Guðnadóttir
|
|
Thursday, 26 November 2009 |
|
Skólataskan sem auglýst var eftir á heimasíðu skólans er fundin.
|
|
|
Þorsteinn Helgi í 2. sæti |
|
|
|
|
Skrifað hefur Sigríður Guðnadóttir
|
|
Friday, 10 September 2010 |
|
Þorsteinn Helgi Sigurðarson, í 8. bekk, hefur staðið sig gríðarlega vel í sumar í Íslandsmótaröðinni í mótorkrossi . Samanlögð stig eftir keppnir sumarsins skiluðu honum í annað sæti til Íslandsmeistara á eftir Guðbjarti Magnússyni en í þriðja sæti var Einar Sigurðsson. Strákarnir þrír keppa allir fyrir Team Honda Racing og innan þess liðs mynda þeir sitt eigið lið í 85cc flokki en þeir kalla sig Team Freaking Awesome.
Þess má geta að árangur Þorsteins Helga, eftir sumarið, er sennilega sá besti sem 13 ára strákur hefur náð í þessum flokki hérlendis.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Evrópumót fatlaðra í sundi |
|
|
|
|
Skrifað hefur Sigríður Guðnadóttir
|
|
Tuesday, 20 October 2009 |
|
Við minnum á Evrópumót fatlaðra í sundi, stærsta mót sem hér hefur verið haldið. Mótið fer fram í Laugardalslaug og lýkur á laugardaginn. Keppendur eru um 400 talsins. Einn keppandanna er Hjörtur Már Ingvarsson nemandi í 9. bekk. Hann hefur farið á kostum og sett eitt Íslandsmet í sínum flokki. (Sjá frétt í DV).
Þetta er einstakt tækifæri til að sjá allt besta sundfólk Evrópu í röðum fatlaðra. Daglega kl. 17.00 er keppt til úrslita í ákv. greinum og þá er einstök stemning á áhorfendapöllunum.
Þarna er á ferðinni ótrúlega hæfileikaríkt keppnisfólk sem lætur fötlun sína ekki hindra sig. Hvetjum alla til að mæta á staðinn og fylgjast með keppninni. Það er áhrifaríkt og hvetjandi fyrir alla að fylgjast með þessum snillingum.
|
|
|
Skrifað hefur Sigríður Guðnadóttir
|
|
Friday, 03 September 2010 |
|
Haustdagurinn fór að þessu sinni fram í Íþróttamiðstöðinni og kepptu nemendur í boðhlaupi og langhlaupi. Árgangar kepptu sín á milli og kennarar og nemendur kepptu í kúluvarpi.
Íþróttakennararnir skipulögðu keppnina og íþróttaráð fylgdist vel með að allir færu eftir settum reglum.
Nemendur hvöttu bekkjarfélaga sína og voru einstaklega prúðir áhorfendur. Allir skemmtu sér konunglega.
Hér eru myndir frá gleðinni.
|
|
|
Skrifað hefur Sigríður Guðnadóttir
|
|
Thursday, 27 November 2008 |
|
Nú líður senn að hinum árlegu jólakvöldvökum. Undirbúningur hefur staðið yfir hjá nemendum upp á síðkastið og nú vilja þeir gjarnan sýna foreldrum og forráðamönnum afraksturinn. Kvöldvökurnar eru á fimmtudögum og byrja kl. 18:00.
| Miðstig 5., 6. og 7. bekkur |
fimmtudaginn 4. desember |
kl. 18:00 |
| Yngsta stig 1., 2., 3. og 4. bekkur |
fimmtudaginn 11. desember |
kl. 18:00 |
| Elsta stig 8., 9. og 10. bekkur |
fimmtudaginn 18. desember |
kl. 18:00 |
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 9 af 212 |